þriðjudagur, 29. september 2009

Ariel Ultra+

Lupé kom úr fríi í dag. Það var gott. Hún hefur verið í burtu í tvær vikur og allskonar aukavinnu hefur þurft að vinna þann tíma á heimilinu. Uppvask og tiltekt, þvottar (reyndar ekkert lent á mér) og annað slíkt sem maður hefur nærri komist hjá. Það skal sérstaklega tekið fram að við erum ekki með uppþvottavél svo uppvaskið er frekar umfangsmikið á þessum bæ.
Ég sá það um leið og ég kom úr vinnunni seinnipartinn að Lupé hafði verið á vaktinni í dag. 10 kg kassinn af Ariel Ultra hafði verið tæmdur í þvottefnisfötuna og líka notað óspart á föt heimamanna. Húsið angaði eins og gott vor. Fleiri og meiri hreinlætisvörur hafa verið notaðar hér í dag en á góðum degi í venjulegu fjölbýlishúsi. Lyktin var yndisleg. Smellið á myndina til að finna blómailminn.


Myndin er sett inn með “Google scent” prógramminu. Smelltu á myndina og finndu ilminn. Ef þú finnur ekki ilminn, er tölvan þín biluð.

Þegar inn í húsið komið virtist allt í fyrstu við það sama, en þó ekki. Hvítur stormsveipur hafði verið á ferðinni. Hjónarúmið sneri eins og í morgun en rúmi Birkis hafði verið snúið 90 gráður. Rúminu í gestaherberginu sömuleiðis. Minna getur maður nú ekki vænst eftir svo langt frí. Blómailmur um allt hús. Það var líka mjög notalegt að sjá að búið var að brjóta saman allar nærbuxur mínar í skúffunni. Maður er klárari í slaginn eftir svona heimkomu.

4 ummæli:

  1. Kærar þakkir fyrir skemmtilegar frásagnir af lífi ykkar og störfum.
    Þær "trække i smilebåndet" sem er virkilega gott manni.

    SvaraEyða
  2. Góð hún Lupé - og munur fyrir Birki að sofa núna í rúminu eftir að því var snúið um 90 gráður - hann hefur verið ánægður með það :-)

    SvaraEyða
  3. Gott að heyra hvað er hugsað vel um ykkur. Ég fann lyktina af blóminu :)
    Bestu kveðjur.

    SvaraEyða
  4. Alltaf gaman að skoða síðuna hjá ykkur hefði viljað vera fluga á vegg á þessari hárgreiðslustofu :) yndislegur blómailmur hjá mér í vinnunni núna! Takk fyrir það.......
    kær kveðja Ruth Bergs.

    SvaraEyða